Hlutróf í slitrótta bloggrófinu

Teygjustökk 2004

Loksins gaf ég mér tíma til að rippa DVD-diskinn sem Moritz gerði úr myndefninu frá Sviss 2004. Hér er teygjustökkið mitt af Verzasca stíflunni:

 

nóvember 9, 2007 Höfundur: helgason | Random Ramblings | | 1 ummæli

Massavandamálið leyst!

Týndi massinn í alheiminum var falinn í afturendanum á mér eftir allt saman. Hægt er að leiða líkur að því að margur heimsfræðingurinn sem hefur fallist á kenningar um hulduefni og slíkt húmbúkk verði vandræðalegur þegar ég birti greinina mína í Nature á komandi misseri.

Kátur eftir uppgötvunina

desember 27, 2006 Höfundur: helgason | Random Ramblings | | 3 Ummæli

Dirty Harold

Las grein um þennan grip á Slashdot og ég varð að áframblogga þetta út af þessu kommenti, omglol.

nóvember 15, 2006 Höfundur: helgason | Technology and Gadgets | | 8 Ummæli

Frávik

Það var komið inn á síðuna mína frá Google í gegnum leitarorðið ‘helgason’.. sem er kannski ekki óeðlilegt nema ég fór og gúgglaði ‘helgason’ og síðan mín kemur á ‘blaðsíðu’ 25! Persónulega hef ég aldrei farið lengra heldur en á 3.-4. síðu. Hvaða frávik leitar svona djúpt að ‘helgason’?

nóvember 2, 2006 Höfundur: helgason | Random Ramblings | | Engin ummæli

Ertu að fokka í mér?

Næsti forseti Bandaríkjanna?

Fuglinn segir bí bí var mér einhvern tímann kennt. Minnir mig á að ég sá hrafn nýlega eyða góðum tíma í að skipulega ná poka upp úr svona járntunnu sem er föst við ljósastaur. Pokinn var stærri en opið sem heild þannig að hrafninn tók hann út í hlutum. Bí bí.

nóvember 2, 2006 Höfundur: helgason | Random Ramblings | | 2 Ummæli

Önnur myndagáta

Ég var ca. hálftíma með þessa. Ef þið verðið brjáluð þá látiði mig bara vita, það veitir mér ábyggilega ómælda ánægju.

október 27, 2006 Höfundur: helgason | Random Ramblings | | 1 ummæli

Hnotskurn

Hérna er umræða í gangi um hvernig krakki fólk var sem fékk mig til að rembast við að muna hvernig krakki ég var.

Ég man ekki mikið eftir að hafa leikið mér mikið inni með kalla og svoleiðis hvað þá farið í mömmó með stelpum ég man hins vegar ég gerði mikið af því að leika mér úti við að veiða síli, byggja stíflur, klifra í ókláruðum byggingum og upp á skóla og slíkt.

Ég og annar strákur (Daníel) vorum fyrstu strákarnir til að kyssa stelpur (score) og upp úr því kom þetta ABC tímabil. Strákurinn var nefnilega sætur áður en hann byrjaði á gelgjuskeiðinu. Ég var ekki bara fyrsti strákurinn til að kyssa stelpu, ég var fyrstur að fá hár á punginn (9-10 ára!) sem aflaði mér viðurnefnisins ‘jólasveinninn’ (því ég var með skegg á pungnum) og ég var einnig fyrstur að fara í mútur (11 ára)…

Ég viku áður en ég verð 10 ára

.. og síðan þá hef ég ekki verið fyrstur til að gera neitt á þessu sviði!

október 26, 2006 Höfundur: helgason | personal thoughts | | 4 Ummæli

Jagshemash

Er búinn að vera að bera aloe vera í kringum augun í dag og taka inn vöðvaslakandi til að laga saltbruna og vöðvakrampa eftir að hafa séð Borat í gærkvöldi. Hvernig væri að láta Borat eða Bruno host-a Óskarinn?

Ég held ekki vatni yfir nýja Muse disknum, hef aldrei fílað þá neitt sérstaklega, alltaf bara eitt og eitt lag sem maður fílar á diskunum þeirra en svo koma þeir með svona meistaraverk upp úr þurru. Spurning með að ég hlusti betur á eldri diskana. Ekki er langt síðan að þeir fóru í iPodinn en samt sem áður eru tvö lög komin á topp 25 mest spilað:

Svo komst ég yfir 500-múrinn í DVD myndum, held að Tarnation hafi verið númer 500, spurning um að fara í meðferð?

Chenqui

október 11, 2006 Höfundur: helgason | Random Ramblings | | 11 Ummæli

Pizza? Now THAT’S what I call a taco!

október 2, 2006 Höfundur: helgason | Random Ramblings | | Engin ummæli

Graphology analysis

 

Ef þið smellið á myndinai þá farið þið á síðu þar sem þið getið fengið rithandargreiningu með því að skrifa þessa setningu og svara nokkrum spurningum um sýnishornið. Prófið síðan að svara öðruvísi til að fá önnur video af þessum snilling, Dr. Gerard Ackerman.

september 30, 2006 Höfundur: helgason | Random Ramblings | | 3 Ummæli