Jagshemash
Er búinn að vera að bera aloe vera í kringum augun í dag og taka inn vöðvaslakandi til að laga saltbruna og vöðvakrampa eftir að hafa séð Borat í gærkvöldi. Hvernig væri að láta Borat eða Bruno host-a Óskarinn?
Ég held ekki vatni yfir nýja Muse disknum, hef aldrei fílað þá neitt sérstaklega, alltaf bara eitt og eitt lag sem maður fílar á diskunum þeirra en svo koma þeir með svona meistaraverk upp úr þurru. Spurning með að ég hlusti betur á eldri diskana. Ekki er langt síðan að þeir fóru í iPodinn en samt sem áður eru tvö lög komin á topp 25 mest spilað:
Svo komst ég yfir 500-múrinn í DVD myndum, held að Tarnation hafi verið númer 500, spurning um að fara í meðferð?
Chenqui


