Hlutróf í slitrótta bloggrófinu

Jagshemash

Er búinn að vera að bera aloe vera í kringum augun í dag og taka inn vöðvaslakandi til að laga saltbruna og vöðvakrampa eftir að hafa séð Borat í gærkvöldi. Hvernig væri að láta Borat eða Bruno host-a Óskarinn?

Ég held ekki vatni yfir nýja Muse disknum, hef aldrei fílað þá neitt sérstaklega, alltaf bara eitt og eitt lag sem maður fílar á diskunum þeirra en svo koma þeir með svona meistaraverk upp úr þurru. Spurning með að ég hlusti betur á eldri diskana. Ekki er langt síðan að þeir fóru í iPodinn en samt sem áður eru tvö lög komin á topp 25 mest spilað:

Svo komst ég yfir 500-múrinn í DVD myndum, held að Tarnation hafi verið númer 500, spurning um að fara í meðferð?

Chenqui

október 11, 2006 - Höfundur: helgason | Random Ramblings | | 11 Ummæli

11 Ummæli »

  1. 501 DVD!!
    Ef við gerum ráð fyrir að þú hafir gert “góð” kaup á þorranum af þessum myndum, gæti meðalverðið verið um hva, ca 1700 kr. á mynd. Það gerir um 850 þús. í heildina. Ef við gefum okkur að þú hafir verið að safna myndum síðastliðin 10 ár þá ertu að kaupa að meðaltali rúmlega 4 myndir á mánuði, sem gerir ca. 7000 kr/mán.

    Segjum nú að þú hefðir lagt þetta til hliðar í sparnað.
    Gerum ráð fyrir lágmarks ávöxtun, 5% nafnvextir. 7000 kr. lagt til hliðar í hverjum mánuði í 120 mánuði. Þá ættir þú að eiga um 1.1 milljón inná banka.

    Fyrir þá upphæð… væri hægt að gera ágætis stuttmynd… eða eitthvað álíka merkilegt. Bara svona pæling.

    Ummæli af Hjalti | október 12, 2006

  2. You are a material man living in a material world.

    Ummæli af Daði | október 12, 2006

  3. Eða keypt mér golfkylfur og handboltaskó :) Þetta er ofmat hjá þér en þetta er af réttri stærðargráðu. Þetta hlýtur þó að vera skárra en að reykja, no? 565*30 á mánuði. Svo ættiru að hafa heyrt um að þú eigir ekki að pissa í lindina sem þú drekkur úr!

    Ummæli af helgason | október 12, 2006

  4. Hehe, ég ætlaði einmitt að bæta við í neðstu línu: Gætirðu lánað mér nokkrar myndir yfir helgina, margmiðlunarspilarinn minn er nefnilega í viðgerð!

    Ummæli af Hjalti | október 12, 2006

  5. Kemur grátandi aftur til Helga, við skulum sjá hvað við getum gert.

    Ummæli af helgason | október 12, 2006

  6. váá ég sé hjalta svo fyrir mér sitjandi við tölvuna og pikka með stóru puttunum sínum á pínu lítinn vasareikni til að reikna þetta allt saman út!
    but still pretty sick belgus! ;)

    Ummæli af malla | október 12, 2006

  7. Excel vinan, excel…

    Ummæli af Hjalti | október 12, 2006

  8. Díses, hættið að dæma hann! Helgi hefur líka tilfinningar!

    Ummæli af Baldur | október 13, 2006

  9. Við njótum öll góðs af þessum myndakaupum bróður míns :) ekki slæmt að geta fengið lánaðar góðar myndir við og við (er einmitt enn með slatta…). En það er nú samt sjokkerandi að sjá tölurnar svona svart á hvítu, hvað þú hefur eytt í þetta, kannski í hærri kantinum útreikningurinn, en samt ;) gætir átt útborgun f. íbúð….

    Ummæli af Björg | október 25, 2006

  10. Ég las einhversstaðar að þessi síða væri tilnefnd til Heimasíðuverðlaunanna 2006… Sel það ekki dýrara en ég keypti það

    Ummæli af Hjalti | október 26, 2006

  11. Varstu ekki elskaður sem barn?

    Ummæli af helgason | október 26, 2006


Skrá ummæli