Hlutróf í slitrótta bloggrófinu

Hnotskurn

Hérna er umræða í gangi um hvernig krakki fólk var sem fékk mig til að rembast við að muna hvernig krakki ég var.

Ég man ekki mikið eftir að hafa leikið mér mikið inni með kalla og svoleiðis hvað þá farið í mömmó með stelpum ég man hins vegar ég gerði mikið af því að leika mér úti við að veiða síli, byggja stíflur, klifra í ókláruðum byggingum og upp á skóla og slíkt.

Ég og annar strákur (Daníel) vorum fyrstu strákarnir til að kyssa stelpur (score) og upp úr því kom þetta ABC tímabil. Strákurinn var nefnilega sætur áður en hann byrjaði á gelgjuskeiðinu. Ég var ekki bara fyrsti strákurinn til að kyssa stelpu, ég var fyrstur að fá hár á punginn (9-10 ára!) sem aflaði mér viðurnefnisins ‘jólasveinninn’ (því ég var með skegg á pungnum) og ég var einnig fyrstur að fara í mútur (11 ára)…

Ég viku áður en ég verð 10 ára

.. og síðan þá hef ég ekki verið fyrstur til að gera neitt á þessu sviði!

október 26, 2006 Höfundur: helgason | personal thoughts | | 4 Ummæli