Frávik
Það var komið inn á síðuna mína frá Google í gegnum leitarorðið ‘helgason’.. sem er kannski ekki óeðlilegt nema ég fór og gúgglaði ‘helgason’ og síðan mín kemur á ‘blaðsíðu’ 25! Persónulega hef ég aldrei farið lengra heldur en á 3.-4. síðu. Hvaða frávik leitar svona djúpt að ‘helgason’?
Ertu að fokka í mér?
Næsti forseti Bandaríkjanna?
Fuglinn segir bí bí var mér einhvern tímann kennt. Minnir mig á að ég sá hrafn nýlega eyða góðum tíma í að skipulega ná poka upp úr svona járntunnu sem er föst við ljósastaur. Pokinn var stærri en opið sem heild þannig að hrafninn tók hann út í hlutum. Bí bí.

